Goodtoknow.is

Goodtoknow.is er upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir framlínustarfsfólk í ferðaþjónustu sem auðveldar starfsfólki að veita ferðamönnum áreiðanlegar og gagnlegar upplýsingar.

Nýliðaþjálfun

Starfsfólk sem fær markvissa þjálfun þegar það hefur störf er líklegra til að aðlagast vel í starfi og mæta þörfum gesta með framúrskarandi þjónustu. Hér getur þú fundið fræðsluefni til þjálfunar á vinnustað og stuðningsefni sem auðveldar móttöku nýs starfsfólks.

Ráðningarferli erlends starfsfólks

Erlendir ríkisborgarar sem koma til starfa innan ferðaþjónustunnar þurfa að sækja um ýmis leyfi og réttindi. Leiðbeiningar okkar auðvelda stjórnendum og starfsfólki ráðningarferlið með því að útskýra hvert skref í ferlinu.

Um Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar býr til fræðslu- og stuðningsefni fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu með það markmið að efla hæfni og gæði í greininni. Þjónusta okkar er fyrirtækjum og starfsfólki að kostnaðarlausu.

Fræðsluefni

Fjölbreytt úrval verkfæra fyrir stjórnendur og starfsfólk til að efla hæfni og gæði.

Stuðningsefni

Verkfæri sem auðvelda ráðningar og greiningu á fræðsluþörfum.

Nám og námskeið

Yfirsýn yfir nám og námskeið fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu.

Viðburðir

Yfirlit yfir allt sem er á döfinni hjá okkur

„Skor á booking.com fór úr 7.9 í 8.3 á innan við sex mánuðum eftir að markviss fræðsla fór fram.“

Kristján Jóhann Kristjánsson, hótelstjóri á Hótel Kletti

Hagnýt verkfæri fyrir ferðaþjónustuna

Goodtoknow.is

Móttaka nýliða

Ráðningarferli erlends starfsfólks

Fagorðalistar

Starfsþjálfun með raundæmum

Fréttir

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar var vel sóttur

11. apr 2024
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar var einstaklega vel sóttur í streymi enda erindin mjög áhugaverð. Þar fengu áhorfendur innsýn í þarfir Z kynslóðar á vinnustað, góð ráð fyrir ráðningarviðtöl og gerð ráðningasamninga, ásamt innsýn í hvernig ferðaþjónustufyrirtæki með 48 starfandi þjóðerni hefur stuðlað að fræðslu og jákvæðri menningu á vinnustað.  Kíktu á upptökuna hér: Ráðningar og Z kynslóðin. Næsti...

Ráðningar og Z kynslóðin

3. apr 2024

Samstarf um Menntamorgna ferðaþjónustunnar

2. apr 2024

„Ef ekki væri fyrir markvissa fræðslu, þá værum við hreinlega ekki samkeppnishæf.“

Geir Kristinn Aðalsteinsson, mannauðsstjóri hjá Höldi

Myndbönd

Viltu vita meira um verkfærin okkar og heyra reynslusögur úr ferðaþjónustunni? Hér getur þú fundið fjölbreytt myndbönd um fræðslu, þjálfun og ráðningar.

Play Video
Í stuttu máli með Katrínu Kristjánsdóttur, sálfræðing hjá Líf og Sál
Play Video
Í stuttu máli með Jónínu Magnúsdóttur, mannauðsstjóra Blue Car Rental
Play Video
Áttu von á nýju starfsfólki?
Play Video
Menntaspjall: Nýtt nám í ferðaþjónustu
Play Video
Fagorðalisti ferðaþjónustunnar
Play Video
Reynslusaga: Hótel Skaftafell

Póstlisti Hæfnisetursins

Skráðu þig á póstlista Hæfniseturs ferðaþjónustunnar og fáðu nýjustu fréttir, tilkynningar og viðburði.

Hafðu samband